Fergus Hume

Fergusson Wright Hume (8. júlí 1859 – 12. júlí 1932), eða Fergus Hume eins og hann kallaði sig, var gríðarlega vinsæll enskur rithöfundur sem skrifaði fjölda skáldsagna á síðari hluta nítjándu aldar og fyrri hluta þeirra tuttugustu.  Upphaflega stefndi hann að því að verða leikskáld og fyrstu bókina The Mystery of a Hansom Cab skrifaði hann í þeim tilgangi að vekja eftirtekt hjá leikhússtjórum. Bókin varð gríðarlega vinsæl og Hume ákvað í kjölfarið að snúa sér alfarið að því að skrifa skáldsögur.

Hume fæddist á Englandi, en þegar hann var þriggja ára fluttist fjölskyldan til Nýja Sjálands þar sem hann ólst upp. Eftir að hafa lokið námi í lögum fluttist hann til Melbourne í Ástralíu og starfaði þar á lögmannsstofu.

Eins og áður sagði skrifaði hann The Mystery of a Hansom Cab fyrst og fremst til að vekja á sér athygli meðal leikhúsfólks. Bóksali sem hann þekkti í Melbourne ráðlagði honum að skrifa í anda Emile Gaboriau sem þá naut töluverðrar hylli. Þegar Hume hafði lokið við að skrifa bókina hélt hann á fund allra helstu útgefenda í Melbourne, en þeir höfnuðu honum strax og flestir án þess einu sinni að lesa handritið. Þeir töldu það algjörlega útilokað að einhver Englendingur sem alist hefði upp á Nýja Sjálandi gæti skrifað eitthvað sem þeir hefðu einhvern áhuga á. Hume lét þessi viðbrögð ekki buga sig og ákvað að gefa bókina út sjálfur. Lét hann prenta 5000 eintök af henni og seldust þau upp á þremur vikum.  Nokkrum mánuðum síðar seldi hann fjárfestum réttinn af bókinni fyrir 50 pund. Átti  hann eftir að iðrast þess, því þeir gáfu bókina út á Englandi þar sem hún seldist í bílförmum. Er jafnvel talið að sagan hafi verið mest selda sakamálasagan sem gefin var út á öllum Viktoríutímanum.

Hume skrifaði eina aðra bók meðan hann bjó í Melbourne en fluttist svo til Englands árið 1888 og helgaði sig alfarið ritstörfum. Fyrstu árin var hann í London en fluttist síðan til Essex þar sem hann bjó alla tíð síðan. 

Hume var mjög afkastamikill rithöfundur og þó erfitt sé að henda reiður á hve margar skáldsögur hann skrifaði í það heila telja þær vel á annað hundrað. Og þó svo að hann teljist seint til helstu bókmenntajöfra síns samtíma, kunni Hume ágætlega þá list að segja sögur. Þá hafði hann töluverð áhrif á þá höfunda sakamálasagna sem sem á eftir honum komu.